11.499 kr.
Á lager
Delúx kassinn – það allra besta sem FincaFresh hefur upp á að bjóða
Í Delúx kassanum er úrvalið alltaf breytilegt eftir árstíð. Við bjóðum margar tegundir af mangó, eins og t.d. Ataulfo, Kent og Keitt, Osteen, Irwin, Sensation. Þú gætir fengið drekkaávexti í öllum regnbogans litum, gulur, fjólublár, bleikur og hvítur. Þú gætir líka fengið carambolla, maracuyá, kirsuber og alls konar aðra framandi ávexti sem við fáum í litlu magni og bara þegar þeir eru í sínu besta formi.
Þetta eru ávextir sem sjaldan rata í hefðbundnu kassana okkar, einfaldlega vegna þess hve takmarkað magn er í boði. Þessi kassi eru hugsaður fyrir þá sem komast ekki í verslunina okkar til að fá allkonar með. Við veljum alltaf það allra ferskasta og besta fyrir þig. Stundum fylgja með nýkreistir safar eða vörur úr netversluninni okkar.