Taktu þátt í ævintýrinu hér --->

NÆSTI KASSI AFHENTUR 02.-04. Maí

Ferskir lífrænir ávextir frá Andalúsíu,Spáni

Hvernig virkar Fincafresh?

cf24afbe-4080-411f-916e-c90afe432d77

Við sendum ferska ávexti frá Spáni

1

Samstarfsaðilar okkar í Andalúsíu, á suðurhluta Spánar, rækta og uppskera árstíðabundna ávexti sem eru af hæsta gæðaflokki. Þessir ljúffengu, lífrænu og sjálfbæru ávextir eru framleiddir með ástríðu og umhyggju fyrir umhverfinu.

2
Fresh ripe exotic fruits on wooden background.

Lífrænir árstíðarbundnir ávextir

Þú getur skráð þig í áskrift og fengið sendingu einu sinni eða tvisvar í mánuði. Einnig er hægt að panta stakan kassa. Sendum á flestar Samskip stöðvar á landinu. Á höfuðborgarsvæðinu er sótt í sjálfsafgreiðslustöðvar Pikkoló.

Sendingakostnaður er 500 kr. Við bjóðum upp á fría sendingu ef þú gerist áskrifandi.

Verkefnið Fincafresh

Við, Bessi Ragúels Víðisson og Borja López Laguna, byrjuðum vináttu okkar árið 2019 þegar Borja flutti frá Madríd til Íslands til að spila fótbolta með Dalvík/Reyni. Strax fannst okkur við eiga mikið sameiginlegt og við byrjuðum fljótlega að læra hver annars móðurmál. Þessi djúpa tenging og sameiginleg ástríða fyrir gæða matvælum leiddi til stofnunar Fincafresh. Markmið okkar er að bjóða fólki hágæða, árstíðabundna og lífræna ávexti allan ársins hring. Ávextirnir okkar koma beint frá völdum bændum í Spáni, sem leggja áherslu á lífræna og sjálfbæra framleiðslu, sem tryggir að viðskiptavinir okkar njóti einungis þess besta, ferskasta sem völ er á hverju sinni. 

box_front
box

Safaríkt bragð í hverjum kassa

Við sendum einnig til fyrirtækja

Við bjóðum fyrirtækjum stórum sem smáum að kaupa staka ávaxtakörfu eða koma í áskrift hjá okkur.

Brakandi fersk ávaxtarkarfa stútfull af lífrænum og árstíðabundnum ávöxtum.

Við sendum til fyrirtækja aðra hverja viku, þriðjudaga til fimmtudaga.