Hvað er innifalið í næstu sendingu?
Mango Tommy Atkins
Mango Lipens
Mango Osteen
Nektarína
Plóma
Hvernig virkar Fincafresh?
Við sendum ferska ávexti frá Spáni
Samstarfsaðilar okkar í Andalúsíu, á suðurhluta Spánar, rækta og uppskera árstíðabundna ávexti sem eru af hæsta gæðaflokki. Þessir ljúffengu, sjálfbæru og að mestu lífrænu ávextir eru framleiddir með ástríðu og umhyggju fyrir umhverfinu.
Gæða árstíðarbundnir ávextir
Þú getur skráð þig í áskrift og fengið sendingu 1,2 eða 4 sinnum í mánuði. Einnig er hægt að panta stakan kassa. Sendum á flestar Samskip stöðvar á landinu. Á Höfuðborgarsvæðinu er sótt í sjálfsafgreiðslustöðvar Pikkoló. Akureyringar sækja í vöruhúsið okkar.
Sendingakostnaður er 950 kr. Við bjóðum upp á fría sendingu ef þú gerist áskrifandi.
Verkefnið Fincafresh
Við, Bessi Ragúels Víðisson og Borja López Laguna, urðum vinir árið 2019 þegar Borja flutti frá Madríd til Íslands til að spila fótbolta með Dalvík/Reyni. Við vildum ólmir læra móðurmál hvor annars og fórum við í heita pottinn í sundlaug Dalvíkur og töluðum ensku, íslensku og spænsku í 20 mínútur hvert og urðum við fljótt mikklir vinir.
Fincafresh byrjaði þegar við vorum heima hjá Bessa. Bessi var að skera appelsínur í tvent og voru þær allar þurar og skemmdar að innan. Borja fannst þetta stór furðulegt því að appelsínur voru ekki í árstíð á þessum tíma í Evrópu. Það rann upp fyrir okkur að neysluvenjur Íslendinga eru stór furðulegar þegar kemur að ferskum ávöxtum og grænmeti. Í staðin fyrir að borða það sem er í árstíð nálægt okkur flytja stórverlanir inn ferskvöru að mikklu leiti inn frá Suður-Ameríku. Þetta er gert vegna þess það er ódýrara að versla í heildsölu þaðan.
Okkar vörur eru sirka 10 daga gamlar þegar þær koma til viðskiptavina okkar. Þetta getum við gert því við erum að versla beint frá bóndanum og ef ákveðnar vörur eru ekki í árstíð þá einfaldlega bjóðum við ekki upp á þær(eins og tíðkast annarstaðar í evrópu) Í samanburði við stundum tveggja mánaða gamallt í lágvöruverslunum.
Markmið okkar er að bjóða fólki hágæða, árstíðabundna og að mestu lífræna ávexti allan ársins hring. Ávextirnir okkar koma beint frá völdum bændum í Spáni, sem leggja áherslu á lífræna og sjálfbæra framleiðslu, sem tryggir að viðskiptavinir okkar njóti einungis þess besta, ferskasta sem völ er á hverju sinni.
Safaríkt bragð í hverjum kassa
Við sendum einnig til fyrirtækja
Við bjóðum fyrirtækjum stórum sem smáum að kaupa staka ávaxtakörfu eða koma í áskrift hjá okkur.
Brakandi fersk ávaxtarkarfa stútfull af lífrænum og árstíðabundnum ávöxtum.
Við sendum til fyrirtækja aðra hverja viku, þriðjudaga til fimmtudaga.