Næsti kassi afhendur ** vika 29, 15. - 18. Júlí **
Ef pantað er bæði vörur og ávaxtakassi, fer allt í sömu sendingu.
-17% Afsl.
1.199 kr. Original price was: 1.199 kr..999 kr.Current price is: 999 kr..
-29% Afsl.
1.399 kr. Original price was: 1.399 kr..999 kr.Current price is: 999 kr..
-20% Afsl.
3.750 kr. Original price was: 3.750 kr..2.999 kr.Current price is: 2.999 kr..
-20% Afsl.
2.997 kr. Original price was: 2.997 kr..2.399 kr.Current price is: 2.399 kr..
-33% Afsl.
5.999 kr. Original price was: 5.999 kr..3.999 kr.Current price is: 3.999 kr..
-20% Afsl.
2.999 kr. Original price was: 2.999 kr..2.399 kr.Current price is: 2.399 kr..
Hvað er innifalið í næstu sendingu?

Mango Irwin

Ferskja

Appelsína

Nektarína

Kleinuhringja Ferskja

Sítróna
Hvernig virkar Fincafresh?

Við sendum ferska, lífræna ávexti frá Andalúsíu, Spáni
Við tengjum þig beint við smábændur og litla framleiðendur sem rækta lífræna, árstíðabundna ávexti og framleiða hágæða vörur. Engir milliliðir – bara hreinar, heiðarlegar afurðir allt árið um kring.
Ath. Þú getur bæt í körfuna eins og þú vilt. Við tökum síðan alla pöntunina saman og sendum <3

Lífrænir árstíðarbundnir ávextir
Þú getur skráð þig í áskrift og fengið sendingu 1, 2 eða 4 sinnum í mánuði. Einnig er hægt að panta stakan kassa. Sendum á flestar Samskipstöðvar á landinu. Á Höfuðborgarsvæðinu er sótt í sjálfsafgreiðslustöðvar Pikkoló. Á Akureyri er sótt í vöruhúsið okkar.
5-10% afsláttur í áskrift!
Verkefnið Fincafresh
Við, Bessi Ragúels Víðisson og Borja López Laguna, urðum vinir árið 2019 þegar Borja flutti frá Madríd til Íslands til að spila fótbolta með Dalvík/Reyni. Við vildum ólmir læra móðurmál hvor annars og fórum við í heita pottinn í sundlaug Dalvíkur og töluðum ensku, íslensku og spænsku í 20 mínútur hvert tungumál og urðum við fljótt miklir vinir.
Fincafresh byrjaði þegar við vorum heima hjá Bessa. Bessi var að skera appelsínur í tvennt og voru þær allar þurrar og skemmdar að innan. Borja fannst þetta stór undarlegt því að appelsínur voru ekki í árstíð á þessum tíma í Evrópu. Það rann upp fyrir okkur að neysluvenjur Íslendinga eru stór furðulegar þegar kemur að ferskum ávöxtum og grænmeti. Í staðin fyrir að borða það sem er í árstíð nálægt okkur flytja stórverslanir inn ferskvöru að miklu leyti inn frá Suður-Ameríku. Það er gert vegna þess að það er mun ódýrara í innkaupum.
Okkar vörur eru u.þ.b 10 daga gamlar þegar þær koma til viðskiptavina okkar. Þetta getum við gert því við erum að versla beint frá bóndanum og ef ákveðnar vörur eru ekki í árstíð þá einfaldlega bjóðum við ekki upp á þær eins og tíðkast annars staðar í Evrópu. Til samanburðar eru ferskvörur stundum tveggja mánaða gamlar í lágvöruverslunum.
Markmið okkar er að bjóða fólki hágæða, árstíðabundna og lífræna ávexti allan ársins hring. Ávextirnir okkar koma beint frá völdum bændum á Spáni, sem leggja áherslu á lífræna og sjálfbæra framleiðslu, sem tryggir að viðskiptavinir okkar njóti einungis þess besta og ferskasta sem völ er á hverju sinni.





