Taktu þátt í ævintýrinu hér --->

Næsti kassi afhendur ** ** vika 37** 10. - 12. September Fyrir áskrifendur sem fá aðra hverja viku, hverri viku og alla sem panta stakan kassa

Ef pantað er bæði vörur og ávaxtakassi, fer allt í sömu sendingu.

Silkimjúk áferð með ferskum lífrænum heslihnetum sem eru ristaðar og muldar í súkkulaðið með hágæða extra virgin ólífuolíu.

1.499 kr.

Tilboð!

-40%

Með sex plötum af okkar allra vandaðasta súkkulaði

Original price was: 7.500 kr..Current price is: 4.499 kr..

750ml

3.999 kr.

Tilboð!

-20%

Við veljum 3 af handhófi

Original price was: 3.750 kr..Current price is: 2.999 kr..

Tilboð!

-33%

Uppruna-súkkulaðipakkinn – ferðalag bragðanna!

Original price was: 5.999 kr..Current price is: 3.999 kr..

Tilboð!

-20%

Hver tegund er með kakóbaunum frá einu og sama svæðinu 🌍

Original price was: 2.997 kr..Current price is: 2.399 kr..

Tilboð!

-20%

Original price was: 2.999 kr..Current price is: 2.399 kr..

Tilboð!

-10%

Original price was: 999 kr..Current price is: 899 kr..

1.999 kr.

Tilboð!

-10%

Original price was: 1.999 kr..Current price is: 1.799 kr..

Ævintýri í hverjum kassa <3

Hvað er innifalið í næstu sendingu?

IMG_2711

Mango Tommy Atkins

purepng.com-mangomangofruithalvedfrontalfullsweetfresh-481521564634qp959

Mango Irwin (Auka í Delúx)

R

Ferskja

R (1)

Plóma (Gullplóma)

R

Nektarína

PARAGUAYA

Kleinuhringja Ferskja

R (2)

Ástaraldin (Aukalega í Delúx)

Hvernig virkar Fincafresh?

cf24afbe-4080-411f-916e-c90afe432d77

Við sendum ferska, lífræna ávexti frá Andalúsíu, Spáni

1

Við tengjum þig beint við smábændur og litla framleiðendur sem rækta lífræna, árstíðabundna ávexti og framleiða hágæða vörur. Engir milliliðir – bara hreinar, heiðarlegar afurðir allt árið um kring.

Ath. Þú getur bæt í körfuna eins og þú vilt. Við tökum síðan alla pöntunina saman og sendum <3

2
IMG_1977

Lífrænir árstíðarbundnir ávextir

Þú getur skráð þig í áskrift og fengið sendingu 1, 2 eða 4 sinnum í mánuði. Einnig er hægt að panta stakan kassa. Sendum á flestar Samskipstöðvar á landinu. Á Höfuðborgarsvæðinu er sótt í sjálfsafgreiðslustöðvar Pikkoló. Á Akureyri er sótt í vöruhúsið okkar. 

5-10% afsláttur í áskrift!

Verkefnið Fincafresh

Við, Bessi Ragúels Víðisson og Borja López Laguna, urðum vinir árið 2019 þegar Borja flutti frá Madríd til Íslands til að spila fótbolta með Dalvík/Reyni. Við vildum ólmir læra móðurmál hvor annars og fórum við í heita pottinn í sundlaug Dalvíkur og töluðum ensku, íslensku og spænsku í 20 mínútur hvert tungumál og urðum við fljótt miklir vinir. 

Fincafresh byrjaði þegar við vorum heima hjá Bessa. Bessi var að skera appelsínur í tvennt og voru þær allar þurrar og skemmdar að innan. Borja fannst þetta stór undarlegt því að appelsínur voru ekki í árstíð á þessum tíma í Evrópu. Það rann upp fyrir okkur að neysluvenjur Íslendinga eru stór furðulegar þegar kemur að ferskum ávöxtum og grænmeti. Í staðin fyrir að borða það sem er í árstíð nálægt okkur flytja stórverslanir inn ferskvöru að miklu leyti inn frá Suður-Ameríku. Það er gert vegna þess að það er mun ódýrara í innkaupum.

Okkar vörur eru u.þ.b 10 daga gamlar þegar þær koma til viðskiptavina okkar. Þetta getum við gert því við erum að versla beint frá bóndanum og ef ákveðnar vörur eru ekki í árstíð þá einfaldlega bjóðum við ekki upp á þær eins og tíðkast annars staðar í Evrópu. Til samanburðar eru ferskvörur stundum tveggja mánaða gamlar í lágvöruverslunum. 

Markmið okkar er að bjóða fólki hágæða, árstíðabundna og lífræna ávexti allan ársins hring. Ávextirnir okkar koma beint frá völdum bændum á Spáni, sem leggja áherslu á lífræna og sjálfbæra framleiðslu, sem tryggir að viðskiptavinir okkar njóti einungis þess besta og ferskasta sem völ er á hverju sinni. 

box_front
box

Safaríkt bragð í hverjum kassa

preloader